Sólstöðuganga
35.000 kr á mann
Um ferðina
Lengd ferðar
Dagsferð
Í boði
19-21 júní og svo 25-27 júní
Brottför
Kl 18:00
Erfiðleikastig
Meðal
Innifalið
Ganga með reyndum leiðsögumanni, drykkir og veisla bíður göngufólks á endastöð.
Taka meðferðis?
Mælt er með að klæðast lagskipt til að geta brugðist við síbreytilegu veðrinu á Íslandi og líða vel í klæðnaðinum, hvorki of heitt né of kalt. Lagskipting er yfirleitt í þremur lögum, sem hægt er að púsla saman eftir veðri og vindum. Ysta lagið verður að vera bæði vatns og vindhelt. Miðlagið er flís eða ull og innsta lagið, sem er næst húðinni sér um að halda líkamanum þurrum, þannig að mjög mikilvægt er að passa öndunina í lögunum vel. Þess vegna er algjörlega bannað að vera í bómull, því hún blotnar þegar við svitnum og veldur kælingu t.d. í stoppum.
Mikilvægt er að vera í réttum fótabúnaði – vatnsheldum gönguskóm með þar til gerðum sólum. Húfa, vettlingar, treflar, sólkgleraugu, sólarvörn, varasalvi og þægilegur bakpoki er nauðsynlegur í allar göngur.
Athugið að í ferðum okkar er ætlast til að göngufólk sé EKKI Í BÓMULLARKLÆÐNAÐI.
Takið með ykkur vatn/vökva, í það minnsta 2L á mann. Einnig nóg snarl fyrir daginn!
Bóka ferð
Aðrar áhugaverðar ferðir

Högnhöfði
Skemmtileg 6 klst ganga, en erfið yfirferðar. Högnhöfði er tignarlegt fjall í um 1002m á hæð við Gullna Hringinn. Nafn fjallsins er dregið af höfði fresskattar, en þegar horft er í vestur af toppi fjallsins er hægt að sjá eyru kattarins.

Bjarnarfell
Bjarnarfell er 750m hátt fjall við Gullna Hringinn, nálægt Langjökli og Jarlhettum. Frá toppi fjallsins er ægifagurt útsýni yfir bæði á grösugar sveitir og Langjökul. Munið eftir myndavél, því útsýnið er ómetanlegt!

Fimmvörðuháls
Fimmvörðuháls gangan er án efa ein sú vinsælasta í gegnum árin, bæði hjá íslendingum og erlendum ferðamönnum. Gangan er um 25 km.

Sólstöðuganga
Njótið góðrar útiveru og náð miðnætursólinni á toppi Snæfellsjökuls um miðjan/seinnipart júní. Sveigjanleiki með dagsetningar til að fá bestu skilyrði með tilliti til veðurs og útsýnis.

Reykjadalur
Reykjadalur er stórkostlegur staður upp af Hveragerði. Þar eru náttúruleg hveraböð sem hægt er að dýfa sér ofaní og njóta náttúrunnar allt í kring.

Vörðufell
Vörðufell er lítið þríhyrningslaga fjall (391m) efst á Skeiðum, suðaustan við Hvítá hjá Iðu. Mjög fallegt og víðsýnt útsýni af toppi þess.
Grænihryggur
Gengið verður að norðurjaðri Torfajökuls og haldið niður með Sveinsgili. Náttúruundur Grænahryggjar skoðað. Vaðið yfir Jökulgilskvísl við furðumyndir Þrengsla og aftur heim.
Kerlingarfjöll
Rúta fer frá Reykjavíkur kl 8. Keyrt er inní Kerlingarfjöll og farið í krefjandi göngu og auðveldari göngu. Svo er farið í heita laug í Kerlingarfjöllum. Alveg upplagt einnig að kikja aðeins í veitingasöluna og fá sér vöfflu og meðþví. Rútan fer aftur til Reykjavíkur seinni part dags.
Póstlisti
Hreint og öruggt

Contact
info@fjallhalla.com
PHONE
+354 696 6758
ADDRESS
801 Reykholt