hornstrandir útfrá Hornbjargsvita

Um ferðina

Við ætlum að bjóða uppá fjögurra daga gönguferð um Hornstandir með dagspoka. Gengið verður útfrá vitanum á Hornbjargi og því verður aðeins að bera léttan poka með nestið fyrir daginn og auka föt.
Hvenær?
25.-28.júlí 2022
Siglt verður úr Norðurfirði við Trékyllisvík og tekur siglingin um 3 klst.
Hvar er gist?
Gist verður í hinum rómaða Hornbjargsvita í svefnpoka plássi, þar sem ágæt aðstaða er til eldamennsku. Gengið verður út frá honum með léttar birgðir.
Hver er dagskráin?
Við munum ganga um Hornbjarg, Hornvík og jafnvel að Drífandisbjargi. Nánari dagslýsingar koma von bráðar.
Það verða 4 göngudagar, þar af 2 léttir og 2 lengri, og gengið verður á bilinu 12-16 km á dag með 500-1200m hækkun.
Hvaðan er siglt?
Siglingin fer úr Norðurfirði við Trékyllisvík, en í boði verður að gista á Djúpavík( http://djupavik.is/) 24. og 28. júlí fyrir þá sem vilja, í tveggja manna herbergi.
Þau hafa einnig boðið okkur söguleiðsögn í gegnum gömlu síldarverksmiðjuna sem tekur um 60-90 mín.
Matur í Djúpavik:
24. júlí – pönnusteiktur þorskur og kaka 4.200
28. júlí – Lambafille og kaka 5.400
Við munum sæta lagi og velja besta veðrið í Hornbjargi, en allar leiðirnar eru gríðalega fallegar og hæfilega langar til að fá að upplifa og njóta náttúru og dýralíf á svæðinu.
Leiðsögumaður í ferðinni er Gunnur Róbertsdóttir sjúkraþjálfari, sem er gönguleiðsögumaður og alræmdur hlaupaþjálfari hjá náttúruhlaupum.
Innifalið í ferð?
* Bátsferðir
* Gisting í Hornbjargsvita 3 nætur
* Kaffi og hafragrautur
* Leiðsögn og undirbúningsfundur
Ekki innifalið?
* Nesti og kvöldmatur
Tilboð er á gistingu fyrir og eftir ferð á hótel Djúpavík en þar er einnig gott tjaldstæði.
Hversu margir?
Hámark 12

Lengd ferðar

3 dagar

Erfiðleikastig

Meðal

Miscelleneus 28 final

Lengd göngu

12 - 16km á dag með 500-1200m hækkun.

sac

Taka meðferðis?

  • Góðan dagspoka
  • Nesti fyrir 3 daga
  • Svefnpoka
  • Útivistarföt sem duga í öll veður. Ull næst þér, einangrun eins og flís eða softshell og svo skel. Einangrunin skiptir höfuðmáli. Mælum mikið með því að hafa meðferðis lopapeysu sem bíður þín í skálanum.
  • Góðir gönguskór og skálaskór
  • Nóg af þurrum sokkum
  • Sólarvörn fyrir andlit og varir
  • Sólgleraugu
  • Húfu og vettlinga og buff
  • Nærföt til skiptanna
  • Göngubuxur
  • Stuttbuxur
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar
  • Bakpokahlíf / plastpokar inní bakpokanum
  • Göngustafir
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Höfuðljós
  • Viðgerðasett, nál og tvinni, (snæri og klemmur)
  • Myndavél og kíkir
  • Peningar
  • Snyrtivörur / sjúkravörur
  • Hælsærisplástur, plástur og teygjubindi
  • Verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Tannbursti og tannkrem
  • Sápa / sjampó
  • Lítið handklæði / þvottapoki
  • Eyrnatappar

Gallery

Bóka ferð

Aðrar gönguferðir

Áfram Gakk

Áfram Gakk 2023 Um ferðina Fyrir hverja? Þessi hópur er frábær fyrir þá sem vilja hafa góða fjalla rútínu í sínu lífi. Fullkomin blanda af miðlungs erfiðum fjöllum þar sem þú bætir fjallaformið jafnt og

Áfram Gakk!

Þetta er löng dagsferð eða um það bil 14-16 klukkustundir. Það eru 195 km á milli Reykjavíkur og Landmannalauga, eða um 3 klst í akstri. Brottför frá Reykjavík klukkan 7:00. Heimkoma um 22:00.
Gangan er um 17 km og tekur um 8 klukkutíma. Vöðum Jökulkvíslina 3-4 sinnum.

Gönguferð á Bjarnarfell með Fjallhöllu

Bjarnarfell

Bjarnarfell er 750m hátt fjall við Gullna hringninn, nálægt Langjökli og Jarlhettum. Frá toppi fjallsins er ægifagurt útsýni yfir bæði á grösugar sveitir og Langjökul. Verið alveg viss um að hafa myndavélina með í ferðina.

Cancellation Policy

afbókunarskilmálar afbókunarskilmálar Dagsferða Fyrir afbókanir sem berast að minnsta kosti 7 almanaksdögum fyrir áætlaða brottför er full endurgreiðsla Fyrir afbókanir sem berast 3 – 6 almanaksdögum fyrir áætlaða brottför er 50% endurgreiðsla. Fyrir afbókanir sem

Ganga Fimmvörðuháls með Fjallhalla Adventurers

Fimmvörðuháls

Gönguleiðin yfir Fimmvörðuháls er krefjandi ganga, en ein vinsælasta gönguleið á Íslandi. Leiðin liggur milli jökla og eldfjalla og um einstaka náttúru í hálendi Íslands. Gengið er á landi sem myndaðist á víkingatíma eða fyrir árþúsundum.

Fjallaáskrift

Fjallaáskrift Kynningarverð, aðeins 3.990 kr. á mánuði skrá mig NÆST Á DAGSKRÁ: SKÁLAFELL Á HELLISHEIÐI 1. OKT Taktu skrefið áfram og upp á við í útivist sem ræktar líkama og sál. Eitt fjall á mánuði

Gönguferðir með Fjallhöllu

Gönguferðir

Gönguferðir með Fjallhalla Grænihryggur Náttúruundrið Grænihryggur í Landmannalaugum er ein helsta perla íslenskrar náttúru með magnaðri litadýrð. Ferð sem allir áhugamenn um íslenska útivist ættu að fara að minnsta kosti einu sinni. Nánar Fimmvörðuháls Gönguleiðin

Gönguferðir með Fjallhöllu

Gönguhóparnir

Maður er manns gaman og fátt er betra en að ganga á fjöll saman. Gönguhópar sem henta byrjendum jafnt sem lengra komnum!

Ganga á Grænihrygg með Fjallhalla Adventurers

Grænihryggur

Þetta er löng dagsferð eða um það bil 14-16 klukkustundir. Það eru 195 km á milli Reykjavíkur og Landmannalauga, eða um 3 klst í akstri. Brottför frá Reykjavík klukkan 7:00. Heimkoma um 22:00.
Gangan er um 17 km og tekur um 8 klukkutíma. Vöðum Jökulkvíslina 3-4 sinnum.

Grænjaxlar – 10 Tinda Trítl

Gönguhópur fyrir byrjendur, fullkominn fyrir alla þá sem vilja fjallgöngu í öruggu og hressu umhverfi. Þægileg kynning á fjallgöngum og útivist. Líkamsrækt sem tengir þig náttúrunni!

Grænjaxlar – 5 Fjalla Fjör

Gönguhópur fyrir byrjendur, fullkominn fyrir alla þá sem vilja fjallgöngu í öruggu og hressu umhverfi. Þægileg kynning á fjallgöngum og útivist. Líkamsrækt sem tengir þig náttúrunni!

Helpie FAQ

[helpie_notices group_id=’65’/] [helpie_faq group_id=’65’/]

Ganga Fimmvörðuháls með Fjallhalla Adventurers

Hnappur

Gönguleiðin yfir Fimmvörðuháls er krefjandi ganga, en ein vinsælasta gönguleið á Íslandi. Leiðin liggur milli jökla og eldfjalla og um einstaka náttúru í hálendi Íslands. Gengið er á landi sem myndaðist á víkingatíma eða fyrir árþúsundum.