
Bjarnarfell
Bjarnarfell er 750m hátt fjall við Gullna hringninn, nálægt Langjökli og Jarlhettum. Frá toppi fjallsins er ægifagurt útsýni yfir bæði á grösugar sveitir og Langjökul. Verið alveg viss um að hafa myndavélina með í ferðina.
3,5 - 4 klukkutímar (9 klst alls)
Lagt af stað frá Reykjavík kl. 8:00
Meðal
8,5km
Gönguskó og föt (ekki bómull), vatnsheld föt ef veður breytist, nesti og vatn.
Bjarnarfell er 750m hátt fjall við Gullna hringninn, nálægt Langjökli og Jarlhettum. Frá toppi fjallsins er ægifagurt útsýni yfir bæði á grösugar sveitir og Langjökul. Verið alveg viss um að hafa myndavélina með í ferðina.
Botnssúlur Bókið ykkar ævintýri Um ferðina Botnssúlur eru nokkrir móbergstindar sem heita Háasúla, Miðsúla, Norðursúla, Syðstasúla (1093m) og Vestursúla. Botnsúlur eru megineldstöð og hafa jöklarnir sorfið niður jarðlögin og skilið eftir hvassa tinda og hryggi.
Gönguleiðin yfir Fimmvörðuháls er krefjandi ganga, en ein vinsælasta gönguleið á Íslandi. Leiðin liggur milli jökla og eldfjalla og um einstaka náttúru í hálendi Íslands. Gengið er á landi sem myndaðist á víkingatíma eða fyrir árþúsundum.
Gangan er mikið til á jökli og er krafist tilheyrandi öryggisbúnaðar. Mikilvægt er að hafa í huga að Snæfellsjökull er nokkuð þægilegt ferðafjall en á sér sínar hættur í slæmu skyggni, þar má nefna sprungur og fall frá toppi.
Þetta er löng dagsferð eða um það bil 14-16 klukkustundir. Það eru 195 km á milli Reykjavíkur og Landmannalauga, eða um 3 klst í akstri. Brottför frá Reykjavík klukkan 7:00. Heimkoma um 22:00.
Gangan er um 17 km og tekur um 8 klukkutíma. Vöðum Jökulkvíslina 3-4 sinnum.
Skemmtileg 6 klst ganga, en erfið yfirferðar. Högnhöfði er tignarlegt fjall í um 1002m á hæð við Gullna Hringinn. Nafn fjallsins er dregið af höfði kattar, en þegar horft er í vestur af toppi fjallsins er hægt að sjá eyru kattarins.
Rúta fer frá Reykjavík kl 8. Keyrt er inn í Kerlingarfjöll og farið í krefjandi göngu og auðveldari göngu. Eftir gönguna er farið í heita laug í Kerlingarfjöllum. Alveg upplagt einnig að kikja aðeins í veitingasöluna og fá sér vöfflu og meðþví. Rútan fer aftur til Reykjavíkur seinni part dags.
Reykjadalur er stórkostlegur staður upp af Hveragerði. Þar eru náttúruleg hveraböð sem hægt er að dýfa sér ofaní og njóta náttúrunnar allt í kring. Reykjadalur tilheyrir jarðhitasvæðinu við Hengil. Þar er mjög viðkvæmur gróður og því mikilvægt að fylgja stígum.
Gangan er mikið til á jökli og er krafist tilheyrandi öryggisbúnaðar. Mikilvægt er að hafa í huga að Snæfellsjökull er nokkuð þægilegt ferðafjall en á sér sínar hættur í slæmu skyggni, þar má nefna sprungur og fall frá toppi.
Gönguleiðin frá Hólaskjóli í austri og að Hvanngili í vestri hefur verið kölluð Strútsstígur og er friðsæl og falleg gönguleið að Fjallabaki – með Mýrdalsjökul og sandana í suðri og Torfajökulssvæðið í norðri.
Á miðri leið er sjálf Strútslaugin sem dásamlegt er að liggja í.
Hengilssvæðið er bara smá spöl frá úthverfum Reykjavíkur en lumar á ýmsu góðgæti fyrir göngugarpa. Við ætlum á hæsta tindinn í Henglinum, sjálfan Vörðu-Skeggja sem er í 805m hæð. Gönguleiðin þangað er nokkuð á fótinn og á einstaka stað má alveg finna fyrir smá lofthræðslu – en leiðin er stikuð, örugg og fremur auðveld.
Kennitala: 430414097
VSK númer: 129803